Skólanefnd Slysavarnaskóla sjómanna
Skólanefndin er skipuð samkvæmt lögum nr. 33/1991 um Slysavarnaskóla sjómanna. Meginhlutverk nefndarinnar er að fjalla um málefni Slysavarnaskóla sjómanna, einkum varðandi tækjakaup og búnað hans, viðhald, framkvæmdir og áframhaldandi uppbyggingu. Skólanefnd gerir, að fenginni umsögn öryggisfræðslunefndar sjómanna, tillögur til stjórnar Slysavarnafélags Íslands um námskeiðahald, námsskrá og lengd námskeiða á vegum skólans. Skólanefnd ræður skólastjóra Slysavarnaskóla sjómanna.
Í nefndinni sitja:
- Gunnar Tómasson, formaður, tilnefndur af Slysavarnafélaginu Landsbjörg,
- Margrét Gunnarsdóttir, tilnefnd af Slysavarnafélaginu Landsbjörg,
- Hilmar Snorrason, tilnefndur af Slysavarnafélaginu Landsbjörg,
- Valmundur Valmundsson, tilnefndur af Sjómannasambandi Íslands,
- Árni Bjarnason, tilnefndur af Félagi skipstjórnarmanna