Starfshópur um almenningssamgöngur á milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar
Starfshópurinn hefur það hlutverk að greina leiðir til að bæta almenningssamgöngur milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar með umhverfisvænum hætti og leggja fram tillögur til úrbóta, bæði til skemmri tíma (fyrir nk. sumar) og lengri (næstu þrjú ár). Horft verður m.a. til leiðakerfis, þjónustustigs, verðskrár, staðsetningar og umgjörðar biðstöðva og kolefnisfótspors.
Niðurstöður og tillögur að úrbótum fyrir næsta sumar liggi fyrir í apríl 2023. Tillögur til lengri tíma liggi fyrir í september 2023. Skipunartími er til 30. september 2023.
Starfshópurinn er þannig skipaður:
• Valgerður B. Eggertsdóttir, formaður, án tilnefningar,
• Anton Kristinn Guðmundsson, tilnefndur af Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum,
• Halldór Jörgensson, tilnefndur af Vegagerðinni,
• Pálmi Freyr Randversson, tilnefndur af Kadeco,
• Valgerður Gréta Benediktsdóttir, tilnefnd af Strætó,
• Theodóra S. Þorsteinsdóttir, tilnefnd af Isavia.