Hoppa yfir valmynd
21. maí 2024 Dómsmálaráðuneytið

Skúli Magnússon metinn hæfastur í embætti dómara við Hæstarétt Íslands

Hinn 1. mars 2024 auglýsti dómsmálaráðuneytið embætti dómara við Hæstarétt Íslands laust til skipunar frá 1. ágúst 2024. Fjórar umsóknir bárust um embættið. Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögn sinni til dómsmálaráðherra og er það mat nefndarinnar að Skúli Magnússon sé hæfastur umsækjenda til að hljóta skipun í embættið.

Dómnefndina skipuðu: Sigurður Tómas Magnússon, formaður, Andri Árnason, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Reimar Pétursson og Þorgeir Örlygsson.

 

Umsögn dómnefndar 15.5.2024.pdf

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum